
Áheyrilegar útsetningar af hefðbundnum íslensum sönglögum og amerískum djasslögum.
Kjass er nýleg hljómsveit sem er tilvalin til þess að skapa fágað og afslappað andrúmsloft á allskonar samkomum eða jafnvel yfir fordrykk. Sveitin flytur áheyrilegar útsetningar af hefðbundnum íslensum sönglögum og amerískum djasslögum. Meðlimir sveitarinnar eru allt reyndir tónlistarmenn sem eru nýlega útskrifaðir eða við það að útskrifast úr tónlistarskóla FÍH.
Kjass er einnig spennandi og áhugaverður valkostur ef óskað er eftir að koma með sterkt, vandað og jafnvel þjóðlegt innslag á ýmis konar samkomur svo sem árshátíðir, ráðstefnur eða brúðkaup.
Kjass skipa þau:
Fanney Kristjánsdóttir, söngur
Anna Gréta Sigurðardóttir, píanó
Mikael Máni Ásmundsson, gítar
Óskar Kjartansson, trommur
Birgir Steinn Theodorsson, bassi
Hægt er að panta hljómsveitina án söngs til að spila hefðubundna djasslög á sinn einstaka hátt.