
Góðir Hálsar spila þægilega Jazztónlist sem að hentar vel sem bakgrunnstónlist við ýmis tækifæri. Meðlimir Góðra Hálsa eru Þorkell Guðjónsson og Jón Ómar Árnason.
Þorkell hefur leikið á gítar frá því að hann var 9 ára. Nú stundar hann nám í tónlistarskóla FÍH á framhaldsstigi. Hann hefur verið í nokkrum samspilshópum og komið fram á tónleikum tengdum því. Hann hefur mikið spilað á hvers konar samkomum, veislum og brúðkaupum með hinum og þessum skemmtikröftum.
Jón hefur stundað nám við Tónlistarskóla FÍH og er með BA gráðu í tónlist frá Leeds college of music í Bretlandi.