Kraðak logo

Björn Bragi

Uppistand,

Veislustjórn

Björn Bragi – Einn vinsælasti uppistandari landsins og kvisskóngur Íslands.

Björn Bragi Arnarsson er einn þekktasti og vinsælasti uppistandari og sjónvarpsmaður landsins. Hann er landsmönnum að góðu kunnur fyrir beittan húmor, snjalla framkomu og einstaka hæfileika til að lesa salinn og skapa stemningu sem grípur alla.

Björn Bragi er stjórnandi vinsæla sjónvarpsþáttarins Kviss, sem hóf göngu sína á Stöð 2 árið 2020, og hefur fest sig í sessi sem hinn eini sanni kvisskóngur Íslands.

Áður hefur hann stýrt fjölda þátta á bæði Stöð 2 og RÚV og hlaut hann Edduverðlaun sem sjónvarpsmaður ársins árið 2013–viðurkenningu sem staðfestir fagmennsku hans og hæfileika. Hann er einnig meðlimur í uppistandshópnum Mið-Íslandi og einn af þeim sem koma fram í sýningunni Púðursykri, sem hefur notið mikilla vinsælda í Sykursalnum í vetur.

Uppistand Björns Braga einkennist af snjöllum pælingum, skörpum athugunum á mannlífinu og einstaklega góðri tengingu við áhorfendur. Hvort sem um er að ræða árshátíð, einkaviðburð eðastóransal fullan af gestum er eitt víst: Þegar Björn Bragi er á sviðinu, er hláturinn aldrei langt undan.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Björn Bragi