Kraðak logo

DJ Atli Kanill

DJ

Atli Viðar (DJ Atli Kanill) – reynsla, taktur og toppstemning

DJ Atli Kanill er reynslumikill plötusnúður með yfir 25 ára reynslu af því að halda dansgólfinu lifandi. Hann spilar á árshátíðum, brúðkaupum, afmælum og alls kyns partýum – hvar sem fólk kemur saman til að skemmta sér.

Atli hefur spilað á mörgum helstu skemmtistöðum Reykjavíkur og víða erlendis, bæði undir eigin nafni og sem Atli Kanilsnúður. Hann er mikill tónlistaráhugamaður sem leggur metnað í að lesa salinn og velja tónlist sem hentar hverju tilefni.

Tónlistarsmekkurinn spannar vítt svið – allt frá klassískum partýslögum til nýrri strauma – og markmiðið er alltaf það sama:
að halda stuði, fylla dansgólfið og skapa kvöld sem fólk man eftir.

Með DJ Atla Kanil við stjórnvölinn er tónlistin í traustum höndum og stemningin trygg.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

DJ Atli Kanill