Kraðak logo

DJ Stjáni

DJ

DJ Stjáni – plötusnúður sem skapar stemningu

DJ Stjáni hefur skapað sér frábæran orðstýr sem plötusnúður á brúðkaupum, árshátíðum og veislum víða um land, auk þess að hafa spilað á flestum helstu skemmtistöðum Íslands. Með mikilli reynslu og næmt eyra fyrir stemningu nær hann alltaf að lesa salinn og halda dansgólfinu lifandi langt fram á nótt.

Stjáni er þekktur fyrir að blanda saman ólíkum tónlistarstefnum á lipran og skemmtilegan hátt, þannig að allir finna eitthvað við sitt hæfi. Hann drekkur í sig andrúmsloft hvers viðburðar og mótar tónlistina eftir því – sem skilar sér í einstökum kvöldum þar sem stemningin fær að njóta sín.

Með DJ Stjána við stjórnvölinn er tónlistin í öruggum höndum og partýið tryggt.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

DJ Stjáni