
Eyþór Ingi
Veislustjórn,
Uppistand,
Tónlist,
Eftirherma
Eyþór Ingi – veislustjóri, uppistandari og ein öflugasta rödd landsins
Með Eyþóri Inga á svæðinu færðu ekki bara einn veislustjóra – heldur heilan hóp af þekktum Íslendingum. Þar mæta meðal annars Páll Óskar, Jakob Frímann, Magnús Hlynur, Egill Ólafs, Björn Jörundur, Helgi Björns, Björgvin Halldórs, Arnar Jónsson, Bubbi Morthens, Kristján Jóhannsson og margir aðrir… enda er Eyþór Ingi ein allra besta eftirherma landsins.
Hann er landsmönnum auðvitað að góðu kunnur og þarf vart að kynna. Með áratuga reynslu af sviðinu býr hann yfir einstöku innsæi í stemningu, flæði kvöldsins og því hvernig á að halda salnum vakandi, hlæjandi og með í partýinu.
Gítarinn er aldrei langt undan og tónlistin fléttast náttúrulega inn í prógramið – sem gerir dagskrána lifandi, fjölbreytta og persónulega.
Eyþór Ingi kallar sig sjálfur ekki uppistandara. En þegar maður stendur einn á sviðinu, reytir af sér brandara, skiptir á milli persóna á sekúndubroti og fær salinn til að veltast um af hlátri… hvað er það þá ef ekki uppistand?
Það er einfaldlega alltaf gaman þegar Eyþór Ingi er á svæðinu.
Og eigum við eitthvað að ræða þessa rödd?
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang

