Góðir Hálsar – þægileg jazztónlist fyrir góða stemningu
Góðir Hálsar spila þægilega og smekklega jazztónlist sem hentar einstaklega vel sem bakgrunnstónlist við ýmis tilefni – fordrykk, móttökur, dinnertónlist og samkomur þar sem stemningin á að vera afslöppuð, hlý og fáguð.
Tónlistin styður við kvöldið án þess að taka yfir og skapar notalegt andrúmsloft sem allir kunna að meta.