Kraðak logo

Grínþjónar

Óvænt uppákoma

Grínþjónar – óvænt fjör í veisluna

Eitt vinsælasta skemmtiatriðið í dag er að fá grínþjóna í veisluna. Þá mæta skemmtikraftar dulbúnir sem hefðbundnir þjónar og gestir halda fyrst að allt sé með hefðbundnu sniði – þar til hlutirnir fara að taka skemmtilega óvænta stefnu.

Þjónarnir byrja rólega, klúðrað „óvart“ pöntunum, hella niður, smakkað matinn og koma með alls kyns sprell sem léttir stemninguna og fær gesti til að hlæja. Vitleysan vindur upp á sig eftir því sem líður á kvöldið en í lokin eiga þjónarnir það jafnvel til að fara alla leið upp á svið með vitleysuna í sér. Að lokum er að sjálfsögðu allt gefið upp og leikarar afhjúpaðir, einhverjum veislugestum til mikils léttis. Uppákomurnar eru alltaf skipulagðar í samráði við veisluhaldara svo þær passi vel við tilefnið og stemninguna.

Grínþjónar henta frábærlega á:

árshátíðir og fyrirtækjaveislur

brúðkaup og afmæli

eða hvers kyns samkomur þar sem húmor og gleði eiga að vera í forgrunni

Óvænt skemmtun sem brýtur ísinn og gerir veisluna eftirminnilega.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Grínþjónar