
Hæ hæ - Helgi & Hjálmar
PubQuiz,
Bingó
Pub Quiz & Bingó með Helga og Hjálmari – grín, stemning og skellihlátur
Hjálmar Örn Jóhannsson og Helgi Jean Claessen halda úti einum vinsælasta hlaðvarpsþætti landsins og eru grínistar fram í fingurgóma – þeir eru af mörgum taldir meðal fyndnustu manna á Íslandi. Þessi reynsla skilar sér beint í salinn.
Pub Quiz með Helga og Hjálmari er lifandi, létt og stórskemmtileg spurningakeppni þar sem húmorinn er í forgrunni og allir fá að vera með. Spurningarnar eru fjölbreyttar, framsetningin snörp og stemningin alltaf í botni.
Auk pub quiz eru vinirnir einnig frábærir Bingóstjórar svo ef eitt slíkt er á dagskrá er um að gera að tryggja sér bestu bingóstjórana í verkið.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang


