
Hreimur
Tónlist,
PopQuiz
Hreimur Örn – lifandi stemning, óstöðvandi stuð
Hreimur Örn, landsmönnum betur þekktur sem Hreimur úr Landi og sonum, er einn reyndasti og ástsælasti tónlistarmaður landsins. Hann getur mætt einn með gítarinn eða með heila hljómsveit, allt eftir því hvers konar stemningu og kraft þú vilt í kvöldið.
Það er vart til sá Íslendingur sem ekki hefur sungið með „Lífið er yndislegt“ eða hnykklað vöðvana yfir „Vöðvastæltur“ – lög sem eru orðin órjúfanlegur hluti af íslenskri gleðitónlist og stemningu.
Hreimur hefur verið í bransanum í meira en 30 ár og veit nákvæmlega hvernig á að lesa salinn, virkja fólk og halda stuði frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Hvort sem um er að ræða ball, árshátíð, bæjarhátíð, einkaviðburð eða partý þar sem allir eiga að skemmta sér, þá er Hreimur maðurinn í verkið.
Pop Quiz með Hreimi
Pop Quiz með Hreimi er léttur og skemmtilegur spurningaleikur þar sem aðaláherslan er á tónlist, en einnig er spurt út í kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Leikurinn er aðgengilegur, lifandi og hannaður til að virkja alla.
Hreimur mætir með gítarinn að vopni og fléttar lifandi tónlist inn í quizið, sem gerir upplifunina enn skemmtilegri og öðruvísi en hefðbundna spurningaleiki. Með húmor, nærveru og mikilli reynslu heldur hann stemningunni uppi frá upphafi til enda.
Pop Quiz með Hreimi er frábær viðbót við hvers kyns samkomur þar sem markmiðið er góð stemning, hlátur og samvera.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang

