
Innblástur
Barnaskemmtun,
Leiksýning
Innblástur
Í blöðruverksmiðjunni Blöðrur ehf. starfar metnaðarfullt og duglegt fólk. Til að tryggja örugg gæðiog ánægju viðskiptavina er mikilvægt að allt starfsfólk fari eftir settum reglum og taki vinnunnialvarlega. Það er bannað að mæta seint, bannað að taka oflangar pásur og bannað að blaðra.Það er þó ein regla sem er mikilvægust af þeim öllum:
ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ LEIKA SÉR MEÐ BLÖÐRURNAR!
(og ekki gleyma að fara eftirlitshringinn)
Innblástur-Leiksýning (60 mínútur)
Innblástur er glæný barna-og fjölskyldusýning sem fjallar um leikgleðina, sköpunarkraftinn ogað kannski séu sumar reglur til að brjóta þær. Í sýningunni er ekkert tal svo tungumálakunnáttasetur engin mörk. Innblástur er leiksýning fyrir börn á öllum aldri sem vilja leika sér.
Leiksýningin er um klukkutími að lengd og er hönnuð með það í huga að auðvelt sé að ferðastmeð hana. Við komum með allan búnað og það eina sem þarf er myrkvaður salur og gólfplássfyrir svið og áhorfendur.
Heimsókn frá starfsmönnum blöðruverksmiðjunnar-20 mínútur
Starfsmenn Blöðrur ehf. hafa aldrei séð heiminn fyrir utan verksmiðjuna. Nú langar þá til að sjáhvað er þarna úti og kíkja í heimsókn til ykkar!
Við bjóðum upp ásprenghlægilega, fjöruga og frumlega 20 mínútna skemmtunþar semleikgleði, sköpun og ímyndunaraflið taka öll völd.
Atriðið hentar fullkomlega til að lífga hressilega upp á:
-Fjölskyldu-og sumarhátíðir
-Leik-og grunnskólaskemmtanir
-Bæjarhátíðir
Bókaðu Innblástur á þína skemmtun!
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang