Júli & Dísa
Veislustjórn,
Tónlist,
Barnaskemmtun
Júlí og Dísa – eitt heitasta veislustjórapar landsins
Júlí og Dísa eru án efa eitt heitasta par landsins um þessar mundir – og ekki að ástæðulausu. Þau sameina sviðsnærveru, húmor, tónlist og ótrúlega stemningu í kraftmikilli heild sem lyftir hverjum viðburði upp á nýtt plan.
Dísa er leikkona, söngkona í Reykjavíkurdætrum, vinsæll áhrifavaldur á Instagram og alveg skelfilega fyndin. Hún hefur einstakt lag á að tengja við gesti, lesa salinn og skapa hlýja en sprúðlandi stemningu.
Júlí er líka leikari en mun þekktari fyrir tónlistina sína – enda hefur hann verið meðal vinsælustu tónlistarmanna landsins síðastliðin ár. Saman tóku þau þátt í Söngvakeppninni í fyrra og sýndu þar glögglega hversu öflug þau eru sem teymi á sviði.
Með Júlí og Dísu við stjórnvölinn er tryggt að það verði mikið stuð, mikið flæði og mikil stemning. Tónlistin spilar stórt hlutverk í kvöldinu, samspil þeirra er lifandi og náttúrulegt og gestirnir finna strax að þeir eru í öruggum – og skemmtilegum – höndum.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang