Kraðak logo

Lalli Töframaður

Veislustjóri,

Barnaskemmtun,

Uppistand,

Trúbador,

DJ,

PubQuiz


Lalli er þaulreyndur, skemmtilegur og fagmannlegur veislustjóri sem býður upp á allt sem veislustjóri getur mögulega boðið upp á.

Lalli heldur utan um öll praktísk mál á meðan veislu stendur, dagskrá á sviði og flæði í sal í samstarfi við yfirþjón(staðarhaldara/yfirkokk) svo veisluna flæði sem best og allir gestir fái sem mest út úr kvöldinu. Ef eitthvað kemur uppá eða ef einhverju þarf að redda, þá stekkur Lalli til og sér um þau mál.

Frá upphafi til enda kvölds býður Lalli svo að sjálfsögðu upp á stórskemmtileg og fjölbreytt skemmtiatriði sem eru samblanda af uppistandi, töfrum og almennri gleði. Hvort sem það er á íslensku eða ensku. Gítarinn er svo alltaf við höndina ef gestir verða sérstaklega söngþyrstir.

Einnig er hægt að bóka Lalla sem DJ(plötusnúð) til að sjá um gleðina eftir að formlegu borðhaldi líkur. Þá sér hann einnig um tónlistina frá því að kvöldið hefst. Allt frá fordrykk, yfir mat og svo DJ-set þegar partíið tekur völd.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Lalli Töframaður