
Leikhópurinn Lotta
Barnaskemmtun,
Leiksýning,
Kynnar
Leikhópurinn Lotta – 20 ár af fjöri, söng og fagmennsku
Leikhópurinn Lotta fagnar 20 ára afmæli í ár. Hann er landsþekktur fyrir líflegar, hlýjar og bráðfyndnar sýningar sem sameina leik, söng og dans. Hópurinn er sérstaklega þekktur fyrir fullorðinshúmorinn sem laumast inn í sýningarnar – sem gerir það að verkum að foreldrum finnst ekki síður gaman en krökkunum. Þetta er fjölskylduskemmtun í orðsins fyllstu merkingu.
Hér eru tveir vinsælir kostir sem henta ólíkum viðburðum – frá stórum sumarsýningum til stuttra, kraftmikilla skemmtiatriða:
LITALAND – sýning sumarsins
Heil sýning • klukkutími
Litaland er ein vinsælasta sýning Leikhópsins Lottu frá upphafi. Hún var síðast sett upp árið 2016 og snýr nú aftur í endurgerð sem ferðast um landið þvert og endilangt í sumar.
Sýningin er klukkutími að lengd, stútfull af sprelli, söng og fjöri – litrík og lifandi upplifun fyrir allan aldur, með mikilvægan boðskap og hentar bæði börnum og fullorðnum.
SÖNGVASYRPA – ævintýri í 20 mínútur
Skemmtiatriði • 2 leikarar
Söngvasyrpan er stutt, kraftmikil og einstaklega vinsæl, sérstaklega á leikskólum. Tvær ævintýrapersónur mæta með 20 mínútna atriði úr ævintýraskógi Lottu – brot af því besta í gegnum árin, fullt af söng, sprelli og fjöri fyrir allan aldur.
Syrpan er auðveld í uppsetningu og aðlögunarhæf að hvaða aðstæðum sem er, bæði innandyra og utandyra – á stóru sviði eða í litlu horni á leikskólalóðinni. Leikhópurinn Lotta á mikið af söngvasyrpum og er því hægt að panta fleiri en eina og fleiri en tvær á viðburðinn. Einnig er hægt að bjóða upp á söngvasyrpu með Leikhópnum Lottu ár eftir ár án þess nokkurn tímann að bjóða upp á sama atriðið.
Hvort sem þú ert að leita að heilli sýningu eða snörpu skemmtiatriði, þá er Leikhópurinn Lotta öruggur kostur fyrir fjör, fagmennsku og skemmtun sem öll fjölskyldan nýtur.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang


