
Magnús Hafdal
Trúbador
Magnús Hafdal hefur heillað landsmenn frá því hann komst í úrslit Ísland Got Talent árið 2015. Hann hefur síðan þá spilað á ótal viðburðum víðsvegar um landið og er þekktur fyrir að skapa einstaka stemningu – hvort sem það er fyrir notalegt kvöld eða fjörugt partý.
Lagaval hans er fjölbreytt blanda af íslenskum og erlendum slögurum, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Magnús kemur oftast fram einn með gítarinn en ef það hentar veislunni betur fær hann með sér annan trúbador – nú eða setur saman allt frá lítilli hljómsveit upp í stóra, eftir því sem tilefnið krefst.
Hvort sem þú ert að skipuleggja einkapartý, árshátíð eða stórt viðburðakvöld – Magnús Hafdal sér til þess að stemningin verði í hámarki.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang