Margrét Erla Maack - Öðruvísi og sniðug veislustjórn með flottum skemmtiatriðum. Eftir borðhald fær Margrét Erla alla út á gólf og kennir nokkur spor, algengast er Beyoncé, ABBA eða Bollywood (fer eftir aldursdreifingu eða þema á, auðvelt er að sérsníða þetta).
DJ eða hljómsveit byrjar því með pakkað dansgólf. Margrét Erla henta vel alls konar stærð á hópum, og sérstaklega ef ekki allir tala íslensku því að langmest af hennar skemmtiatriðum eru án orða og skemmtunin er sjónræn.
Margrét Erla á auðvelt með að laga skemmtiatriðin að mismunandi hópum, rými og þema veislunnar. Hún er einnig plötusnúður og hefur verið vinsælt að bóka hana í "allan pakkann," þá sem veislustjóra og plötusnúð og er það vinsælt til dæmis ef veislan er haldin fjarri heimahögum.