
Morðgáta
Samkvæmisleikur,
Óvænt uppákoma
Morðgáta – spennandi skemmtun þar sem allir taka þátt
Morðgáta er lifandi og einstaklega skemmtilegur samkvæmisleikur þar sem þátttakendur stíga út fyrir hversdagsleikann, fara í hlutverk og vinna saman að því að leysa ráðgátu kvöldsins. Með vísbendingum, samskiptum og skemmtilegum áskorunum þróast sagan smám saman – þar til sannleikurinn kemur í ljós.
Leikurinn hentar fullorðnum hópum sem vilja öðruvísi skemmtun og virkar frábærlega í vinahópum, á vinnustöðum, í árshátíðum eða öðrum samkvæmum.
Hvernig virkar þetta?
Þátttakendur fá úthlutað persónu nokkrum dögum fyrir viðburðinn ásamt upplýsingum um karakterinn – hegðun, bakgrunn og jafnvel fatastíl. Hversu langt fólk gengur í hlutverkinu er val hvers og eins, en það eykur alltaf stemninguna að mæta „all in“.
Á viðburðinum leiða sögumenn leikinn áfram og tryggja gott flæði, spennu og skemmtun.
Hagnýtar upplýsingar
Hentar hópum frá um 10 upp í 30 manns (eða þar á milli)
Tekur yfirleitt 2–3 klukkustundir eftir fjölda og stemningu
Við komum með leikinn þangað sem þið viljið – heimahús, vinnustaði, samkomusali eða aðra viðburðarstaði
Það eina sem þarf er húsnæði, góður hópur og veitingar – við sjáum um restina
Já, það er framið morð… og morðinginn gæti verið meðal ykkar 👀
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang

