
Nýi starfsmaðurinn
Óvænt uppákoma
Nýi starfsmaðurinn - Óvænt uppákoma á árshátíðinni
Hvað gerist þegar nýr starfsmaður mætir á árshátíðina eða starfsmannagleðina og er kynntur inn sem hluti af teyminu? Í fyrstu virðist allt eðlilegt – en smám saman fer hann að haga sér undarlega, segja skrýtnar sögur, taka til máls og færa sig æ hærra upp á skaftið.
Gestir fylgjast forvitnir og stundum gapandi með þegar nýi starfsmaðurinn fer loks aðeins yfir strikið – áður en sprengjan springur og í ljós kemur að hér er á ferðinni óvænt skemmtun sem enginn gleymir!
Þessi tegund af uppákomu er bæði frumleg og einstaklega fyndin, slær nær undantekningarlaust í gegn og er oft rædd á kaffistofunni árum saman.
Heyrðu í okkur og við finnum út úr því saman hvernig nýi starfsmaðurinn getur lífgað upp á viðburðinn þinn.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang