Kraðak logo

Pétur Jóhann

Uppistand,

Veislustjórn

Pétur Jóhann Sigfússon – lifandi goðsögn íslensks húmors

Pétur Jóhann er einn ástsælasti og þekktasti uppistandari landsins – maðurinn sem hefur fengið Íslendinga til að hlæja í áratugi og kann enn listina að rúlla salnum upp af hlátri.

Margir muna eftir honum sem Ólafi Ragnari í hinu vinsæla Vaktaseríum, sem froskinum í eftirminnilegum Tal auglýsingum (Essa sú) og sem hinum ógleymanlega vitleysingi í 70 mínútum. Persónur hans hafa orðið hluti af íslenskri dægurmenningu og eru jafn fyndnar í dag og þær voru þá.

Hann var kjörinn Fyndnasti maður Íslands árið 1999 – titill sem að mati margra á enn fullkomlega við. Pétur Jóhann býr yfir einstakri næmi fyrir tímasetningu, líkamstjáningu og karaktervinnu og uppistand hans er blanda af snilldarlegum persónum, óvæntum snúningum og tærum hlátri.

Með Pétur Jóhann á sviðinu er eitt víst:
Þetta verður kvöld sem fólk talar um lengi á eftir.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Pétur Jóhann