
Sigga Eyrún
Veislustjórn,
Tónlist
Sigga Eyrún – veislustjóri og söngkona sem lyftir stemningunni
Sigga Eyrún er reynslumikill veislustjóri og öflug söngkona sem sameinar hlýja framkomu, örugga stjórn og lifandi tónlist á fágaðan en skemmtilegan hátt. Hún les salinn vel, heldur dagskránni gangandi og veit nákvæmlega hvenær á að ýta undir stemningu – og hvenær á að sleppa henni lausri.
Sigga Eyrún & Karl Olgeirsson – meiri lifandi tónlist
Sigga getur einnig veislustýrt með Karli Olgeirssyni, sem kemur með hljómborð eða rafmagnspíanó ef píanó er ekki á staðnum. Saman bjóða þau upp á fjölbreytta og lifandi tónlistarupplifun:
Lifandi undirleik og söng
Samsöng (sing-along) ef óskað er
Dinnertónlist eða tónlist í fordrykk (jazz, popp, poppað jazz o.fl.)
Tónlistargetraunir og leiki – sérstaklega vinsælt á árshátíðum
Skothelt tónlistaratriði sem dregur alla út á dansgólfið eftir mat
Hægt að setja saman hljómsveit fyrir ball ef óskað er
Sigga Eyrún – sóló
Sigga getur einnig séð ein um veislustjórn og tónlistaratriði með undirspili á playbacki. Hún er með tryllta syrpu (15–20 mínútur, nokkrar útgáfur) sem hún hefur sungið á böllum til að koma fólki út á dansgólfið – og það hefur aldrei klikkað.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang


