Kraðak logo

Sigvaldi Helgi

Trúbador

Sigvaldi er fæddur og uppalinn Skagfirðingur. Hann hefur frá unga aldri komið fram á sviði, einsamall eða með hljómsveit, söng og spilaði fyrst í heimabyggð, en síðar um land allt. Hann hefur séð um tónlist á þorrablótum, í afmælum, brúðkaupum, útförum, öldrunarheimilum, skólum, veitinga og vertshúsum, komið fram með hljómsveitum og kórum og svo mætti áfram telja. Árið 2015 tók hann þátt í Voice Ísland og komst í úrslitaþáttinn. 

Sigvaldi býr nú á höfuðborgarsvæðinu og hefur spilað þar víða, bæði á opinberum stöðum og í einkasamkvæmum. Hann syngur bæði á ensku og íslensku, jafnvel dönsku og hefur öðlast mjög mikla reynslu og færni í að halda uppi og lesa stemminguna í salnum. 

Sigvaldi er góður gítarleikari og hefur tekið að sér undirspil fyrir aðra og/eða séð um undirleik við borðhald. Árið 2024 gaf hann út smáskífuna Up North sem inniheldur frumsamin lög og texta. Slagorð hans er: ,,Tónlist við flest tilefni”

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Sigvaldi Helgi