Kraðak logo

Sirkus Íslands

Trúðar,

Fjöllistafólk,

Blöðrulistamenn,

Andlitsmálun,

Popp & Kandífloss

Sirkus Íslands – gleði, glens og ótrúleg sirkusbrögð

Sirkus Íslands býður upp á litrík, skemmtileg og eftirminnileg sirkusatriði sem hafa slegið í gegn ár eftir ár hjá leik- og grunnskólum, fyrirtækjum og á sumarhátíðum víðs vegar um landið.

Við mætum með glens, grín og ótrúleg sirkusbrögð sem heilla börn á öllum aldri – og foreldrar njóta sýninganna svo sannarlega líka. Sýningarnar eru sérsniðnar fyrir börn, fjörugar, hlýjar og fullar af húmor.

Sirkusatriðin henta bæði utandyra og innandyra (við góða lofthæð) og eru yfirleitt um 20–25 mínútur að lengd, sem gerir þau fullkomin fyrir skólahátíðir, sumarhátíðir og fjölskylduviðburði.

Meira en bara sýning

Vinsælt er að panta heildarupplifun, þar sem sirkuslistamennirnir:

sýna atriði

ráfa um svæðið, grínast, spjalla og gleðja börn og gesti

skapa lifandi sirkusstemningu á hátíðarsvæðinu

Bjóða einnig upp á:

- Andlitsmálningu

- Blöðrulistamenn

- Popp- og kandíflossvélar 

Þessi atriði henta sérstaklega vel á sumarhátíðir fyrirtækja, bæjarhátíðir og stærri viðburði þar sem fjölskylduvænt fjör er í forgrunni.

Sirkus Íslands er traustur og reynslumikill kostur fyrir þá sem vilja gleði, fagmennsku og sanna sirkusstemningu á viðburðinn sinn.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Sirkus Íslands