Kraðak logo

Sóli Hólm

Uppistand,

Veislustjórn

Sóli Hólm – uppistandari í fremstu röð

Sóla Hólm þarf vart að kynna. Hann sannar vinsældir sínar ár eftir ár með gríðarlegum fjölda sprenguppseldra Jóla Hólm sýninga og hefur fest sig í sessi sem einn allra vinsælasti uppistandari landsins um þessar mundir.

Uppistand Sóla er beitt, snjallt og ótrúlega fyndið – hann hann talar beint inn í samtímann, mannlífið og það sem allir þekkja - en fáir segja upphátt.

En þar endar þetta ekki. Sóli býr yfir leynivopnum sem lyfta atriði hans enn hærra:
hann getur bæði gripið í gítarinn og skreytt dagskrána með stórkostlegum eftirhermum.

Meðal þeirra persóna sem hann túlkar á ótrúlega sannfærandi hátt eru meðal annars Gylfi Ægisson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Herbert Guðmundsson – og sú allra heitasta um þessar mundir: Inga Sæland, sem hann lék af einstakri snilld í Áramótaskaupinu.

Með Sóla Hólm á sviðinu er tryggt að kvöldið verði fjölbreytt, lifandi og fullt af hlátri – uppistand, tónlist og eftirhermur í einum öflugum pakka.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Sóli Hólm