
Sveppi
Veislustjórn,
Uppistand
Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi) – veislustjóri, grínisti og alvöru stemningsmaður
Sveppi, eða Sverrir Þór Sverrisson, er einn þekktasti og vinsælasti skemmtikraftur landsins. Hann er sjónvarpsmaður, leikari, grínisti og veislustjóri sem hefur skemmt landsmönnum í yfir tvo áratugi.
Sem veislustjóri er Sveppi afslappaður, fyndinn og einstaklega góður í að lesa salinn. Hann heldur dagskránni gangandi með húmor, sjarma og reynslu sem tryggir létta og skemmtilega stemningu hvort sem um er að ræða árshátíð, brúðkaup, afmæli eða stærri viðburði.
Sveppi hefur einnig nýlega verið að þreifa fyrir sér í uppistandi og kemur meðal annar fram í uppistandssýningunni Púðursykur í Sykursalnum. Hægt er að bóka hann sérstaklega sem uppistandara – kraftmikið og persónulegt atriði þar sem húmorinn fær að njóta sín til fulls.
Með Sveppa við stjórnvölinn er eitt víst: það verður hlátur, góð stemning og kvöld sem fólk man eftir.
Skipuleggjum viðburðinn þinn.
Sími
Netfang

