Kraðak logo

Tónafljóð

Barnaskemmtun,

Tónlist

Tónafljóð bjóða upp á stórskemmtilega barnaskemmtun sem hentar á fjölskylduhátíðir, barnadaga á skóla og leikskólaskemmtanir og við hvers kyns gleðileg tilefni allt árið um kring.

Skemmtunin er 25 mínútna söngleikur þar sem heyrast vinsælustu lög teiknimyndanna, á borð við „Þetta er nóg“, „Kóngur klár“ og „Við tölum ekki um Brúnó“.

Sönghópinn Tónafljóð skipa söngkonurnar Hanna, Dagný Ásta, Selma, Rebekka Sif og Elísa Hildur, sem allar hafa verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðasta áratuginn.

Tónafljóð eru þekktar fyrir líflega sviðsframkomu og litríku blómakjólana sína sem gleðja augað.

Auk barnaskemmtunar bjóða Tónafljóð einnig upp á 30–40 mínútna dægurlagasyrpu með íslenskum perlum á borð við Ég er kominn heim, Heyr mína bæn og Vegbúann.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.

Tónafljóð