Kraðak logo

Um okkur

Kraðak var stofnað árið 2007 og hefur frá upphafi starfað við viðburðastjórnun, jólasveinaþjónustu og sem sjálfstæður leikhópur. Áhersla okkar er á fagmennsku, sköpunargleði og persónulega þjónustu með það að markmiði að skapa eftirminnilega upplifun fyrir viðskiptavini og gesti.

Aðal eigandi Kraðaks og annar af stofnendum fyrirtækisins er leikskáldið, leikkonan og rithöfundurinn Anna Bergljót Thorarensen.

Viðburðaþjónustuna höfum við starfrækt frá stofnun Kraðaks. Þar sinnum við skipulagningu og framkvæmd fjölbreyttra viðburða fyrir fyrirtæki, stofnanir og fjölskyldur. Heimasíðan kradak.is (sem þú ert núna á) heldur utan um viðburðaþjónustuna okkar.

Jólin eru hjá okkur

Jólasveinaþjónustan okkar – Jolasveinar.is – er jafn gömul fyrirtækinu en allt frá jólunum 2007 höfum við aðstoðað fyrirtæki, félög, stofnanir og fjölskyldur við að komast í samband við jólasveinana. Við erum svo heppin að vera með beina tengingu upp í Grýluhelli og hjálpum ykkur að bóka persónur úr uppáhalds tröllafjölskyldu okkar Íslendinga á viðburðinn ykkar.

Leikhús og skapandi verkefni

Leikhópur Kraðaks hefur einnig sett upp ýmis verkefni í gegnum árin. Þar á meðal leikritið Ævintýri í Jólaskógi, sem var fyrst sýnt fyrir jólin 2020. Ævintýri í Jólaskógi er vasaljósaleikhús þar sem áhorfendur ferðast um skóginn í Guðmundarlundi í litlum hópum, eftir að dimmir, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferð sinni í gegnum skóginn fjórar persónur úr Grýluhelli sem hver um sig flytur lítið jólaleikrit, litla jólasögu. Hægt er að fræðast nánar um verkefnið hér. Ævintýri í Jólaskógi er í eigu Sigsteins Sigurbergssonar, Önnu Bergljótar Thorarensen og Kraðaks.

Hafðu samband og við gerum eitthvað skemmtilegt saman

Verkefni Kraðaks eru mun fleiri en hafa verið talin upp hér enda hálfgert Kraðak að reyna að átta sig á allri starfsemi félagsins. En í stuttu máli getum við í raun tekið að okkur flest ef ekki öll þau verkefni sem snúa að skemmtun og elskum að sérsníða skemmtun að óskum viðskiptavina okkar.

Skipuleggjum viðburðinn þinn.